Ég mun fá martraðir þar sem ég fæ tjaldhæla í augun eftir að hafa lesið þetta… hrollur.
Sjálf dett ég yfirleitt bara. Oft. Mjög oft. Niður stiga, á dansgólfum, eða bara einhversstaðar úti á götu.
Datt á svellbunka fyrir jól og þrátt fyrir mjööög vafasamt ástand á mér var það hræðilega vont. Lagaðist samt eftir smá og ég gekk í svona 20 mín í viðbót. Ég var að deyja í bakinu í marga daga á eftir, auk þess sem ég fékk verstu hælsæri í heimi af þessu rölti (var búin að labba a.m.k. klukkutíma þegar ég datt). Ég gat ekki gengið í neinu nema skóm sem voru opnir að aftan í svona 2-3 vikur. Stígvélin mín eru líka butchered eftir þetta :þ