Fer dáldið eftir því á hvaða ‘stigi’ ég er. Reyni nú að fara ekki á stigin sem eru ekki eins skemmtileg ;).
Svo getur það líka farið eftir almenni líðan. Ef ég er að ganga í gegnum erfiðleika og/eða líður illa (þó það sjáist ekki almennt) þá getur það brotist út við minnsta áfengi (átti erfitt með mig um daginn eftir 2 rósavínsglös), ef ég er hinsvegar hamingjusöm get ég farið í gegnum öll stigin án þess að fella tár :P.
Annars verð ég opnari, hætti að pæla í afleiðingum (sem er oftast í lagi), skemmti mér æðislega, verð örugglega mjög kjánaleg og verð stundum dáldið heimsk.
Ef ég næ á slæmu stigin verð ég mjög erfið og leiðinleg :).