Sama hér. Ég er reyndar bara 17 ára, en mamma og pabbi myndu aldrei leyfa mér að drekka. Ég kom reyndar einu sinni heim af balli eftir að hafa verið að drekka, hafði gleymt lyklunum áður en ég fór og þurfti að hringja í mömmu til að biðja hana um að opna fyrir mér.
Annað hvort tók hún ekki eftir neinu eða ákvað að taka ekki eftir neinu. Skiptir í rauninni ekki máli, því að á meðan hún lætur eins og hún viti ekki að ég drekk, þá er það mér í hag.