ef við tökum þig sem dæmi eins og þú gerir; þú kýlir gaur og ert kýldur á móti og choke-aður út þá eru til margar mismunandi aðstæður sem þetta getur skeð í.
Það sem gerist með vin okkar hérna er skrifaði þessa grein er;
1. Hann er kýldur.
2. Hann kýlir á móti (ósjálfráð viðbrögð við árás)
3. Náunginn reynir að berja aftur að honum.
4. Sögupersónan okkar choke-ar hann út.
5. vinir náungans byrja að stappa á sögupersónunni okkar.
6. Þeim er hennt út.
Ef þú ert svæfður þá, eins og ég sagði hérna áður og þú ættir kannski að lesa aðeins nánar, þá ertu aðeins rænulaus/rænulítill í örfáar sekúndur og þá rankaru við þér, eða, í rétt nógu langann tíma til þess að það sé hægt að trappa þig niður og festa þig þannig þú getir ekki skaðað neinn, hvorki þig né aðra. Það að stoppa blóðrásina stutta stund skaðar ekki nema örfáar af þessum milljörðum heilaselna sem þú hefur í hausnum, skaðar jafn margar og ef þú lemur hausnum í vegg. Enda væri þetta ekki leyft í sjálfsvarnaríþróttum á Íslandi ef þetta væri bannvænt eða gæti haft í för með sér varanlegann skaða á heilabúi viðkomandi fórnarlambs. punktur, það þarf ekki að ræða það frekar.
og hann átti að verja sig en ekki væla svo yfir því að vera hent út
hvar í heiminum er restin af athygglinni þinni? Hann var að verja sig og ég held að miðað við hverskonar combacks og rök þú ert að koma með að þú sjáir ekki munin á því að verja sig við dyravörðinn eða spurja afhverju hann hennti manni út, og þú myndir eflaust túlka bæði sem væl. Þannig það er varla hægt að rökræða það frekar við þig. Enda var hvorugt okkar á staðnum.
gefa gaurnum sem svæfði mig klapp á bakið fyrir góða sjálfsvörn??
já eiginlega. Ef að þú ert að ráðast á manneskju af ástæðulausu í fyrsta lagi og hún tekur þig á eyranu og tekur þig svo í þurrann bossann og gerir þig að fífli, á þá sú manneskja ekki klapp á bakið skilið fyrir að hafa varið sig? staðið upp fyrir sjálfri sér?
Myndir þú vilja láta öskra á þig fyrir að verja þig?
Tökum bara gott dæmi hérna;
Ráðist er að unglingsstúlku með hníf. Stelpan er þó frekar fær í að bjarga sér og nær árásarmanninum í handalás með þeim afleiðingum að hann sleppir hnífnum og hún óvart/viljandi (skiftir engu máli) brákar á honum hendina.
Ætlar þú að segja mér, eða nei, núna ert þú búinn að segja mér að það væri ekki réttlætanlegt að hrósa stelpunni fyrir góða frammistöðu. Núna ætti að skamma hana fyrir þetta hræðilega atvik að hafa varið líf sitt og limi í staðin fyrir að hafa látið stinga sig og látið árásarmanninn komast upp með það.
Þetta er nákvæmlega það sama og gerðist hér, alveg sömu aðstæður.
Hópur af strákum (árásarmaður m/hníf), ræðst að einum strák(stelpan), en strákurinn er sniðugur og bjargar sér frá því með því að choke-a hann út.(Stelpan tekur árásarmanninn í handalás og sleppur)
myndiru ekki hrósa kærustunni/kærastanum þínum, systur, móður, vinkonu eða vin fyrir það að hafa verið snögg/ur að hugsa og bjargað sér útúr þessu með choke outi eða armbar eða bara einföldu rothöggi í smettið? í staðin fyrir að láta berja sig í hakk?
Ég ætla að rétt að vona það því annars ert þú hræðilega fucked mannvera vinur.