Voðalega létt að gera góða bollu. Þarft eiginlega 2-3 lítra af einhverju áfengi (Vodka, Bacardi Razz td.)canned ávexti og svo þynnt út með sprite eða einhverjum gosdrykk. Get ekki sagt hvað þú þarft mikið, bara smakkar. Svo líka gott að láta einhvern djús (appelsínu, epla whatever).. Klakar..
Ég man eftir bollu sem ég gerði um síðustu verslunarmanna helgi. Ég og nokkrir félagar mínir vorum í heimahúsi og áttum alveg rosalega mikið af afgöngum. Þannig við sóttum bala, keyptum canned ávexti og sprite. Svo helltum við bara öllum afgöngum út í balann. Og ég náði því eiginlega ekki hvað fór út í heh. Við vorum allir að hella útí öllu stuffinu okkar. En það fór meðal annars, 2 lítrar af vodka, 1l bacardi 1l razz, hálfur morgan, breezer (hehe ég veit), alveg helling af afgangs orkudrykkjum sem voru ætlaðir til blands (bombur, burn, magic)..
Og svo var bara ætt í hana. Gestir sem komu og smökkuðu hana voru að spyrja hvort hún væri óáfeng því það fannst ekkert áfengisbragð af henni. Og hún var blönduð uþb 50/50.
Það lentu margir í blackouti þetta kvöld..