Skondið að sjá snert á þessu vandamáli, já þetta er líka vandamál fyrir mig :)
Ég stunda líkamsrækt, og er nokkuð frambærilega vaxin, sem ég er að sjálfsögðu hinn hressasti með, en ég reyni að sýna hógværð og vera ekkert að flagga því meira en þörf er á fyrir eigið ego.
En þegar áfengismagnið í mínu blóði er komið upp fyrir ákveðin, en óþekkt mörk, vilja lepparnir af kroppnum, og það kemur varla fyrir að ég sé ekki á einhverjum undarlegum tímapunkti orðin ber að ofan, og ef illa fer kominn á nærurnar!
Þetta er í mínu tilfelli hryllileg sýningarmennska sem ég skammast mín mikið fyrir, þó að vinir og vinnufélagar mínir hendi bara gaman að og líta á sem fasta hefð, er þetta mikill ókostur í teitum hjá ókunnugum þar sem fólk réttilega álítur þetta vera fáránlega hegðan með meiru og ósmekklega sýningarþörf. Svo ekki sé talað um að reyna að nálgast kvennfólk eftir svona stripp-session, nema ég þekki þær þeim mun betur fyrir.
Allavega, ég veit ekki hvaða ástæður liggja að baki hjá þér, en ég skil þig bróðir. Af hverju henda ekki bara allir leppunum klukkan 3 hvort eð er? -það er svo gaman :)