Ég fann oft drykk sem heitir Tinto Verano eða eitthvað svoleiðis. Hann er reyndar meira rauður en bleikur, enda er þetta rauðvín og einhver gosdrykkur sem líkist sprite blandað saman. Hann er 4,5% áfengur og fékkst í 1,5l plastflöskum og er líklega í búðinni á svipuðum stað og rauðvínin, eða þú getur bara spurt. Ég veit ekki hvort þeir selji þetta ennþá, hef ekki séð þetta í smá tíma.