Hahahahahahaha!!!!
Ertu að tala um kaffi krist? Bwahahahaha, þetta er búið að vera þarna lengi (var alltaf á efri hæðinni) þetta er sá sorglegasti staður sem fyrirfinnst á Jörðu.
Ég stundaði það á tímabili að fara þarna inn á fylleríis flippi og láta vitleysingana þarna reyna að frelsa mig og gefa mér kaffi og kleinur. Það voru einu sinni einhverjir útlendingar þarna sem börðu mig í ennið með biblíu til að fæla burtu illa anda, ég ætlaði aldei að geta hætt að hlægja. Það er endalaust gaman að fíflast í þessu kristnilega pakki, en ég myndi samt ekki láta sjá mig þarna núna þar sem allt sem maður gerir sést svo vel úti á götu núna, enn þessi staður var brilliant í gamla daga þegar maður var fullur.