Já!!! Það er einn þar sem þú notar spilastokk! Þá er 1-10 soparnir sem þú tekur og ef það kemur drottning þá eiga allir að drekka jafn lengi og sá sem dró spilið (og náttla gífurleg skömm af því að klára þá ekki glasið), ef þú færð gosa verðurðu að gera einhverja hreyfingu með og eftir það verða allir að gera þessa hreyfingu. Svo þegar næsti fær gosa þá verður hann að gera báðar hreyfingarnar (í réttri röð) og síðan verða allir hinir að gera þessar hreyfingar líka þegar þeir þurfa að draga og drekka. Og er það kemur kóngur þá má sá sem dró velja einhvern annan til að drekka fyrir sig. Mig minnir að leikurinn sé einhvern veginn circa svona, það gæti verið að þetta sé eitthvað vitlaust hjá mér, ég þori ekki alveg að fara með það. Ég varð náttla haugafull þegar ég fór í hann og man þar af leiðandi ekki alveg öll smáatriðin sko… Ykkur leyfist að leiðrétta mig! Annars held ég að það skipti litlu hverjar reglurnar séu, þú getur útfært þetta eins og þú vilt, svo lengi sem þær verða ekki of flóknar.