16 ára aldur og þú hefur aðgang að öllu þarna á benidorm.
Skemmtu þér vel, en gagtu hægt um gleðinnar dyr…. (hljóma eins og einhver eldgömul…) en ég ætla bara að minna þig á að drekka ekki frá þér allt vit og svoleiðis því það er mjög auðvelt að lenda í einhverru slæmu þarna úti, það er kannski verra fyrir stelpur en stráka… en hlutir geta gerst.
passaðu þig bara að vera með svona innanklæðaveski eða geyma pening ekki á einhverjum hefðbundum stöðum.
Svo eru það skemmtustaðirnir… þeir eru flestir mjög skemmtilegir, mikið af dansmúsík og mikið af partýfólki.
Þá er bara enn og aftur að passa uppá glasið sitt, aldrei að skilja það eftir einhversstaðar þar sem enginn gætir þess, það er mikið af því að sett sé eitthvað útí drykk hjá fólki. Helst bara að kaupa sér alltaf drykk sem er í glerflösku.
En annars bara skemmtu þér vel og vona þú lendir ekki í neinu slæmu. :)