Fyrir stuttu síðan þá fór ég á djammið með vinkonu minni og þegar liðið var undir morgunn þá týndi ég henni. Fljótlega upp úr því fór ég heim og var alveg viss um að hún myndi redda sér.
Daginn eftir hringir hún í mig og segir mér að hún hafi fengið *Blackout* og rankað við sér um 8 um morguninn og þá var hún í Leigubíl með einhverjum manni, og vissi ekkert hvar hún var né hvaða maður þetta var. Í því stoppaði leigubíllinn og gaurinn borgar, þá segir vinkona mín að hún ætli ekki út hérna, heldur að hún vilji fara heim til sín, en Leigubílsstjórinn neitaði að keyra hana heim og rak hana út.
Því miður náði hún ekki frá hvaða leigubílastöð þetta var….!
Hafið þið heyrt um svipuð dæmi…?