Ég rakst á mjög athyglisverða síðu fyrir stuttu, síðan er hýst af nýrri grasrótarhreyfingu sem kallast LÖG unga fólksins. Þetta er hreyfing með beinu lýðræði þar sem allar ákvarðanir eru teknar fyrir opnum tjöldum í gegnum netið. Meðal bakhjarla Laga unga fólksins eru Undirtónar, Nulleinn.is, Breakbeat.is, Hiphop.is, Dordingull.com, Theperma.net og Radio X FM 103,7.

Eftirfarandi texti er á síðunni:
Þriðjudaginn 26. júní gerði borgarstjórn aðför að frelsi ungs fólks í Reykjavík. Flestir eru sammála um að ástandið í miðborg Reykjavíkur hafi aldrei verið betra og að frjáls opnunartími veitingastaða hafi gefist mjög vel. Þrátt fyrir þetta sáu borgarfulltrúar sig knúna að hlusta á siðapostula innan og utan lögreglunnar og breyta honum. Þetta var gert þrátt fyrir fjölmarga kosti frjáls opnunartíma. Tilgangurinn virtist vera að breyta skemmtanavenjum Íslendinga svo þær pössuðu betur við vaktakerfi lögreglunnar.

Svona fyrirkomulag, þegar reglur eru settar um opnunartíma fyrirtækja á þennan hátt, minnir um margt á LÖGREGLURÍKI. Það er ekki í verkahring yfirvalda að ákveða háttatíma okkar. Af hverju er bara ekki gengið alla leið og öllum stöðunum lokað klukkan 11.30? “Það er engum hollt að fara seinna að sofa.”

Við þurfum að mótmæla þessu. VIÐ ÁKVEÐUM SJÁLF HVENÆR VIÐ FÖRUM AÐ SOFA. Við þurfum enga borgarfulltrúa til að ákveða það fyrir okkur, þótt þeir hafi verið beittir þessari frelsisskerðingu á sínum yngri árum, þegar þjóðfélagið líktist um margt austantjaldsríki. Þið getið farið að sofa klukkan hálftíu ef þið viljið. Blandið okkur bara ekki í það.

Kíkið á síðuna og mótmælið nýjum og verri opnunartíma!!!
www.nulleinn.is/lokun