Já eins og stendur í titlinum þá stöndum við ágætlega að vígi og erum í 28 sæti fyrir Nóvember. Það má svosum gera betur komast upp fyrir einhver áhugamál sem eru ekki eins spennandi eins og þetta. Ég bara hvet alla til að senda inn myndir, greinar og skoðunarkannanir.
Við stefnum á eitt af 20 efstu sætunum í jólamánuðinum!
kv Heiðar.
Ps: Ef ykkur dettur einhverjar skemmtilegar hugmyndir um að bæta þetta áhugamál þá er ég opin fyrir þeim. Þið getið sent mér þessar hugmyndir í einkaskilaboðum og við munum skoða málin.