Nei, hann dó ekki fyrir syndir okkar, heldur syndir þeirra sem taka hann í líf sitt, gera hann að leiðtoga lífsins eins og oft er sagt.
Eða þannig túlka margir guðfræðingar þetta. Þú verður að samþykkja Jésú sem leiðtoga þinn til að fá þetta Get Outta Jail Free kort sem hann býður upp á.
Jú þetta skiptir heljarinnar máli, þetta er drifkraftur trúmanna, þetta er mótívasjónin sem þeir sjá fyrir því að reyna að fá alla í sína klíku, þetta er góðverkið sem þeir telja sig vera að gera öllum.
Ef allir væru sammála um að Jésu hefði dáið fyrir syndir ALLRA væru trúmenn ekki að reyna troða vitleysu sinni upp á þá sem ekkert vilja með hana hafa.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..