Ertu að halda því fram að börnin á myndinni hafi ekki gert þetta viljandi?
Ég er að halda því fram að ef þú segjir krakka á þessum aldri að allir í heiminum nema við séu illir nasistar sem að éta börn í morgunmat þá munu þau trúa þér og byggja heimsmynd sína á því. Ég tel að þessi skammarlausi áróður og þessi innprentun hugmynda sem á sér stað á myndinni sé siðferðislega rangur.
Finnst þér í lagi að þröngva skoðunum þínum á áhrifagjörn börn? Hvernig myndiru bregðast við ef þú sæjir það að stjórnendur stundarinnar okkar væru að auglýsa vinstri græna eða sjálfstæðisflokkinn?
Kvikindin trúa á skeggjaðan mann sem á fljúgandi hreindýr og vinnur við það að dreifa gjöfum til allra barna heimsins á einni nóttu, for fuck's sake. Þau eru varnarlaus.
En aftur, hvernig réttlætiru það sem er að gerast á myndinni?