Það er varla að maður eigi að standa í því að svara svona ódýrum áróðri, hvað þá rökræða við jafn fáfróðann mann og Skugga greyið. í stuttu máli gæti ég svarað á móti að svona væru ísraelar:
http://imugustur.blog.is/tn/500/users/c3/imugustur/img/c_documents_and_settings_notandi_desktop_israel_bombs.jpgEn af því að ég veit betur, að svona eru ekki allir ísraelar, ætla ég vera málefnalegur …
í fyrsta lagi ber myndin yfirskriftina ,,Palestínumenn" rétt eins og þetta sé palestínska þjóðinn eins og hún leggur sig. Þannig er það ekki. Í hverju einasta landi eru öfgamenn og þeir þrýfast sérstaklega vel í eymdinni í palestínu. Ég ætla mér ekki að slá skjaldborg yfir slíka hópi og það gera palestínumenn ekki heldur. Minnihluti palestínsku þjóðarinnar styður hryðjuverk á meðan ísrael er eina landið í heiminum sem styður pyntingar, um 53% íbúa samkvæmt fjölmennri könnun.
Í örðu lagi eru myndirnar augljóslega teknar á einhverskonar samkomu meðal öfgamanna, þar sem sumir skarta sig riflum og börnin plastbyssum því þau gætu ómögulega loftað ekta byssum eins og þau sjást með á myndinni. Skuggi greyið trúir því sennilega að þessir vondu, vondu palestínsku villimenn marseri svona um göturnar daglega.
Í þriðja lagi vill Skuggi greyið meina að þessir vondu, vondu palestínumenn kenni börnunum sínum vopnaburð um leið og þau læra að labba. Þeir sem hafa verið í Palestínu vita að þannig er það allsekki. Foreldar reyna auðvitað að hlýfa börninum fyrir öllum viðbjóðinum en þrátt fyrir það átta þau sig fljótt á því hvað sé á seiði. Næstum hverri einustu fjölskyldu fyglir harmsaga um yfirgang, svívirðingar og manndráp ísraelska hersins. Þeir krakkar sem ekki verða vitni að árásum ísraela, þurfa ekki annað en að fara út fyrir mörk síns heimabæjar. Við bæjarmörkin þurfa þau að bíða í fleiri klukkustundir eftir því að ísraelskur hermaður framkvæmir líkamsleitað á þeim á meðan annar hermaður miðar vélbyssu á barnið - svona til að fullkomna niðurlæginguna! Þess má einnig geta að ísraelskir hermenn - góðu karlarnir hans Skugga - eru flestir á aldrinum 18 - 21 árs, semsé sumir óharðnaðir táningar!
Ef ég skil Skugga greyið rétt er í lagi að Ísraelar berjist með vopnum en hinir vondu, vondu palestínumenn eiga sko alls ekki að verja sig, þó að þeir geti oftast ekki gripið til annars en að kasta steinvölum á móti byssukúlunum!