Án frjálsra fjölmiðla er slíkt ómögulegt. Það breytir engu hvernig Ísraelsmenn haga sér, þeir eru alltaf málaðir upp sem djöfullinn í þeim arabaríkjum sem eru í herferð gegn þeim. Hófsamari Ísraelsmenn mun aldrei skila sér í því að útrýma hatri gegn þeim í miðausturlöndum. Jafnvel þó þeir myndu bara pakka niður og yfirgefa miðausturlönd þá þyrftu nokkrar kynslóðir að deyja út til þess að fá sjáanlegan árangur.
http://www.pmw.org.il/ Væri heimsbyggðin ekki búin að velta sér upp úr því ef sambærilegt múslimahatur væri kennd í Ísrael? Af hverju eru vestrænir fjölmiðlar ekki að sýna okkur þetta? Er sannleikurinn of grófur? T.d. hafa Palestínumenn og Íranir gert skopmyndir af gyðingum og vesturlandabúum í mörg ár, ekki var sýnt þær þegar heimsbyggðin var að velta sér upp úr nokkrum slíkum frá Danmörku.
En það er alveg rétt hjá þér að sumir lenda kannski í því að vera stimplaðir gyðingahatarar. Hinsvegar held ég að það sé auðveldara þegar kemur að múslimum, sérstaklega eftir 11.september 2001. Nokkrir einstaklingar hérna á Huga hafa fullyrt að ég beri hatur eða fordóma gagnvart aröbum fyrir það eitt að hallast að Ísraelsmönnum og hafa verið stuðningsmaður Íraksstríðsins. En nú er staðan einmitt þannig að besti vinur minn er arabi. Hann sannfærði mig að öfgamúslimar eru aðalvandamálið og að miðausturlönd þurfi að losna undan öfgatrúar-einræðisstjórnum til þess að geta þróast út í betri lífsgæði. Evrópubúar ættu að vera búnir að læra það að stundum þarf að færa fórnir til þess að koma á betra tímabili. Hvernig væri Evrópa í dag ef nasistarnir hefðu ekki verið stöðvaðir? Væri þýska töluð á Íslandi? Ég held að öfgamúslimar í miðausturlöndum séu ekkert annað en þeirra “nasistar” og að heimsbyggðin þurfi að stöðva þá algjörlega í stað þess að flakka reglulega á milli þess að hafa stríð eða vopnahlé.