Drengur, fólk er ekki á hneykslast á því að múslimar skuli vera að mótmæla þessu. Fólk er að hneykslast á því hvernig það er gert. Það er eitt að mótmæla friðsamlega, það er annað að brenna niður sendiráð, hóta ofbeldi og sniðganga allt danskt, norskt eða sænskt afþví að EINKAREKIÐ blað ákveður að birta myndir. ÞEgar þú ert byrjaður að hóta þeim manni sem nýtir sér málfrelsi sitt, ofbeldi, þá ertu kominn útfyrir venjuleg mótmæli.
Málfrelsi er líka að taka stöðu gegn hlutum ekki bara vera sammála öllum
Fólkið sem hefur ákveðið að láta eins og hálfvitar og eru að hóta ofbeldi eru ekki talsmenn málfrelsis, þeir eru óvinir þess. Þetta er fólk sem vill banna alla gagnrýni sem beinist að spámanninum.
Ætlar þú að labba upp að þessum mönnum og segja þeim að málfrelsi sé góður hlutur afþví að þá fá þeir tækifæri til að mótmæla alla gagnrýni á Múhammed? Myndi það ekki þýða að aðrir hefðu líka fullkominn rétt á því að kalla Múhammed svínarðil og morðingja?
ÞAð er hægt að fara í endalausar hártoganir útaf þessu.
Bottomline: Þeir sem eru að mótmæla með hvað öfgafyllstum hætti eru ekki að nýta sér neitt málfrelsi, þeir eru að beita ofbeldi og það er ekkert sem ég veit um sem heitir ofbeldisfrelsi.