Þetta er nú ekki mikill náungakærleikur. Hræsnisleg undirskrift. Það verður nú að leyfa mönnum að vera svolítið vitlausir í friði. En ef hann hefur ákveðið að hætta sjálfur þá er það allt í lagi, sérstaklega ef hann er að leika þetta. Ef hann er ekki að leika held ég að hann hefði gott af því að tala við sér þroskaðri og málefnalegri menn, hann gæti lært mikið á því að vera hérna.
En jújú, ég græt þetta ekki. Það er fátt sem eyðileggur meira fyrir baráttunni við rasista en einfeldingslegar fullyrðingar og nafnaköll. Alveg eins og peace4all vinnur lacitilop gegn þeim málstað sem hann segist fylgja. Þess vegna finnst mér líklegast að hann sé búinn til af manni með þveröfugar skoðanir.