Nú er komið að því kæru hugar og aðrir góðir menn og konur.
Mótmæli á Austurvelli
Námsmannahreyfingarnar og ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna hafa boðað til mótmæla vegna komu Jiang Zemin hingað til lands. Mótmælin fara fram á Austurvelli næsta föstudag klukkan 15:30. Fólk er hvatt til að binda svartan borða fyrir munn sinn til að mótmæla mannréttindabrotum í Kína.
Ég hvet ykkur til þess að fjölmenna niður á Austurvöll og mótmæla komu Jiang Zemin og aðgerðum stjórnvalda sem selja grundvallar mannréttindi á ótrúlegum afslætti.
Einnig vil ég biðja fólk um að haga sér vel, og vera ekki með nein læti, bæði til þess að skemma ekki málsatðinn fyrir hinum og svo að sjálfsögðu líka vegna þess að þessir menn eru STÓRHÆTTULEGIR, þeir hika ekki við að SKJÓTA, diplómata lög verja þá þammig að þeir munu ekki verða lögsóttir ef þeir gera eitthvað af sér.
Þær hreyfingar sem standa að skipulagningunni að þessum mótmælum hafa fengið til liðs við sig nokkra þjóðþekkta íslendinga til að taka þátt í mótmælunum og það stefnir í fjölmennust mótmæli
hér á landi í tugi ára.