Það er svolítill misskilningur að Sharon vilji alla palestínu menn burt frá Ísrael og hann sé eins og Hitler, vilji útrýma palestínumönnum. Nei aftur á móti styður hann sjálfstæði palestínumanna og samkvæmt fréttum morgunblaðsins var Sharon eini sínum flokki sem styður sjálfstæðið palestínu manna, en flokkurinn hans Likud er algjörlega á móti sjálfstæði Palestínu og er fyrverandi forsetiráðherra Benjamin Netanyahu forystumaður þess að Palestina fái ekki sjálfstæði (samkv. morgunblaðinu).
Ég hef lesið oft hvað Sharon er slæmur og að hann jafnist við verstu einræðisherra. En það eru aðrir menn sem eru í sama flokki og hann sem pressa á hann til að sýna meira harðræði gegn palestínum “hryðjaverkamönnum”.