Höfuðborgarsamtökin
Nú var ég að sjá að þessi samtök eru loksins komin með framboðslista og verður gaman að sjá hvort þau fái einhverja umfjöllun (þ.e. meira en nú) þar sem aðeins örfáir vita af þessu framboði sem stendur. Það væri nú gaman að fá a.m.k. einn mann frá þeim inn í borgarstjórn svo það sé nú möguleiki að breyta Reykjavíkursveit í Reykjavíkurborg! Ég gæti best trúað því að samtökin eigi eftir að fá eitthvað af þeim atkvæðum frá fólki sem ætlaði að skila auðu eða sleppa því að mæta, ég vona það að minnsta kosti.