Hmmmmmmm, svo þú veist allt um trúarleiðtoga sem dóu fyrir þúsundum ára?
Hvað um það þá vinsamlegast þoli ég ekki þetta “kynþáttakjaftæði”
Fórstu á þessa jdl síðu já, ég sá hana hérna, ekki sérlega áhugaverð en tókstu eftir svarta fólkinu á “image awards” eða what ever það hét?
http://www.khazaria.com http://www.blackandjewish.comErfða rannsóknir sýna að Gyðingar hafa gen líkust Palestínumönnum, og verða bara að teljast sami “kynstofn”, en þær sýna einnig að margt annað er í genum Gyðinga.
Hefurðu séð Aliciu Silverstone? Lítur út eins og Dani, ekki satt?
Hún er Gyðingur lengst aftur….
Hefurðu séð Whoopi Goldberg, já þessa kolsvörtu þarna?
Sama gildir um hana!
Get real!
Plís engar fasista lygar hérna á borð við þær sem verið var að halda á lofti í Þriðja ríkinu.
Hingað til hefur það nú helst verið Peace4All sem hefur verið með þetta blaður um að þeir séu kynþáttur, ekki villtu bætast í hópinn með honum, eða?
Farðu á
http://www.beliefnet.com , ef svo ólíklega vill til að þú trúir þessu, þar ætti að vera helling um þetta….
Og vissirðu að samkvæmt Gyðingdómi er trúskiptingur, gulur, svartur eða grænn eða hvað sem er, ÆÐRI Gyðingur, Gyðingum ber að “heiðra” föður sinn og móðir, en það er talin upp sem skylda í trúarritum Gyðinga að “elska” trúskipting með “ sinni innstu veru”. Skrýtið, ekki satt? Ja, hvað myndi fólk segja ef Íslenska ríkisstjórnin færi að skylda þjóðina til þess að “elska nýbúa með sinni innstu veru”? Við myndum halda að þeir hefðu laglega fengið sér að reykja hass eða eitthvað verra, og væru komnir aftur í einhvern hippa fíling eftir 30 ár, kannski, en við myndum ekki fara að ásaka þá um rasisma.
Þú notaðir þetta fáfræðislega orð eflaust í misgripum, það á ekki við um þá, þeir eru annars heldur ekki venjuleg þjóð fremur stór (15 milljónir í heiminum) ættbálkur af einhverju tagi
en
http://www.beliefnet.com gæti vel haft eitthvað um það svona ef einhver hefur áhuga.
En það er hættulegt að nota þetta orð og Gyðingar fordæma það nær allir ef einhver er að kalla þá “kynþátt”, málið er bara alls, alls ekki svo einfalt.
Hvað Móses var að pæla veit enginn, hann er löngu dáinn….
Hins vegar var Móses giftur konu af öðrum kynþætti sem hafði tekið upp Gyðingatrú, en hann predikaði gegn því að Gyðingar hefðu neitt að gera með konur af öðrum trúarbrögðum, en auðvitað voru undantekningar eins og konan hans sem vildi bara vera Gyðingur, mig minnir að hún hafi verið frá svæðinu sem nú er Eþíópía en ég man það ekki alveg. Ljóðaljóðin fjalla reyndar um svarta konu, eða felstir telja að hún eigi líklega bókstaflega að vera svört,( eins og konan hans Móses var ekki ólíklega… ) sem er Gyðingur en í minnihluta og biður aðra Gyðinga að hafa ekki fordóma fyrir sér, hún sé svona svört út af sólinni annars sé hún bara eins og þau (nútímaleg pæling, ekki satt? Ef þú átt Biblíu geturðu lesið Ljóða ljóðin, mjög stutt bók, bara nokkrar blaðsíður:) ) svo “Jesus was black?” Kannski…Sem sagt Gyðingar væru fremur sekir um trúar-fasisma, sem ég er þó ekki að ásaka þá um en rasisma. Vissulega eru til Gyðingar sem eru rasistar en trúin fordæmir það alveg. Mjög trúaðir Gyðingar myndu svo líta á nýjan svartan nú eða gulan Gyðing ,sem ekki var fæddur Gyðingur, sem ÆÐRI Gyðing, en þeir sem meira er sama um eða þekkja trúnna minna eiga frekar til að vera rasistar sem vissulega hljóta að vera þarna í bland eins og annars staðar. En trúin er ekki rasísk. Og ja, Móses var kannski “kynþáttasvikari” og það var bara ókei. Ættmóðir Davíðs konungs, Rut, ein virtasta Gyðingakona allra tíma var líka af annari þjóð og var ekki Gyðingur ,svo kónga fólk Ísraels, þar með Jesús samkvæmt Nýja Textamentinu, eru “blendingar” eins og eflaust flestir Gyðingar í dag…
En þú veist þetta kannski allt og varst bara fljótfær, en svona ef einhver er að taka mark á honum Peace4All með nasistaruglið um “kynþátt” endalaust. Ég benti honum á að rabbíar heimsins fordæmi þetta rugl en hann sagði þá bara að hann vissi þetta alveg jafn vel og þeir. ;) ha ha ha! Það var nú kannski það allra besta hjá honum hingað til! Vita allt betur um kaþólsku en páfinn! Fyndið! :)
Þetta var kannski bara fljótfærni hjá þér:) En eitthvað krakkagrey hérna heldur kannski í alvörunni að Peace4All sé svona mikið expert, ja bara meiri en rabbíar, og það væri jú ekki gott:) Ég er ekkert expert heldur ,en ég veit þó eitthvað, og ekki vildi ég að það væri stanslaust verið að ljúga upp á Íslendinga, svo það var um að gera að rifja smá upp…:)