TIL NIFLHEIMS:
Þetta rusl sem þú varst að setja hérna inn á eru álíka gamlar lygar og “Protocols of the Learned Elders of Zion” og álíka æla.
Þessi viðbjóður hefur drepið fólk.
Talmud er risastór bók, mikið stærri en Biblían og hana tekur árafjölda að lesa, bókin er fremur í því að spyrja spurninga en segja sannleika. Fáir hafa nennt að lesa þessa dularfullu gríðarstóru bók en fræðimenn Gyðingar og ekki Gyðingar segja þessa staði sem þú telur upp fæsta vera til í bókinni….
Ég meina ég gæti alveg sagt “Matteus 5:4 : Og Jesús sagði við lærisveina sína, drepa skallt þú múslimana.” en það myndi ekki breyta því að það væri bull…“ Gyðingar hafa þurft að sæta miklum svona lygum til dæmis var ein útbreiddasta goðsögnin um þá að þeir stælu litlum, sætum kristnum börnum, dreæpu þau og settu blóð þeirra í kökur til að borða um hátíðisdaga sína…Fáránlegt ekki satt? En þessu trúðu nú milljónir afþví rétt eins og ruslinu sem þú ert að pósta hér var ÞESSU HALDIÐ Á LOFTI! Gyðingar voru jafnvel myrtir fyrir meint ”barna-blóðköku át“ furðulegt, þar sem Gyðingdómur banna alfarið neyslu á blóði, það er jafnvel tekið úr kjöti þeirra með sérstökum aðferðum áður en þeir borða það, og það er nú fábreitt úrval af kjöti sem þeir mega borða og menn eru ekki innfalnir…
Ég hefði getað fundið miklu betri link en hér er einn sem talar um þessar fáránlegu ásakanir þínar, eins og að Gyðingdómur leyfi barnamisnotkun og þar kemur í ljós:
flest af þessu sem þú ert að tala um ER ÞARNA EKKI, jafnvel sumar bækurnar eru ekki til, svipað og ef ég myndi finna upp í misjöfnum tilgangi: ”Benna guðspjall 7:9 : Lemja skallt þú börnin, segir Jesús, því börn eru Satan sjálfur“ ( Uh, en Benna Guðspjall, líkt og margar þessar bækur þínar eru ekki til…! )
Það af þessu sem er til er bara annað hvort hluti af umræðu (og rabbíarnir voru stundum bara reiðir og höfðu rangt fyrir sér, til dæmis er meira mark tekið á Rabbi Hillel en köllunum sem hann reifst við (rökræddi) en samt er líka sagt hvað þeir sögðu
, og annað skilst ekki nema í ákveðnu samhengi…Álíka og ég væri að lýsa kristni og myndi vitna í Jesús ” Hver sá sem kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður….er mín ekki verður…“ og alla þessa skrýtnu hluti sem hann sagði, og gleymt að taka fram ”þetta var nú líklega dæmisaga“ eða ” hann,sagði nú margt fallegt líka…
Villtu þú ganga í liðsveit heimskingja og illmenna fortíðarinnar sem drápu hinn og þennan fyrir að “vera norn” og Gyðingana fyrir “barnablóðkökuát” ásamt öðru? Varla…
En hér er sem sagt hinn RAUNVERULEGI Talmúd, ekki besti linkinn en segir allt sem þarf og þú getur svo sent upplýsta fólkinu sem stendur að þessari síðu e-mail….PS: Gunnar Dal sem er aðdáandi þessarar bókar sagði í sjónvarpinu að hún taki 10 ár í lestri. Ég veit ekki hvort þetta skáld og heimspekingur hefur lesið þessa bók alla, en heldurðu virkilega að allt þetta heimska pakk sem heldur þessu fram hafi nennt því?
Hér er sem sagt RAUNVERULEGI TALMÚD, útskýringar á því hvað af þessu er útúrsnúningur og hvað uppspuni!
http://freemasonry.bcy.ca/anti-masonry/van_hyning.html Sko , frímúrarana! En það eru fleiri linkar með sömu upplýsingum, og þetta er satt.
PS: Símonar guðspjall 4:15 “ drottinn segir ”sexý smábarn maður!"
En, hehemmmm,Símonar guðspjall er ekki til…! Svona fáránlegt var þetta hjá þér drengur, vitnandi í fullt af rugl bókum og svo útúrsnúning
http://freemasonry.bcy.ca/anti-masonry/van_hyning.html Þú trúir því kannski að Gyðingar borði blóð barna í ákveðnum kökum? Vissir þú aðnokkrir ættbálkar í Afríku héldu kristna trúboða vera vampírur vegna undarlegs tal þeirra um “blóð Krists”
og óttuðust þá…..Það er stutt í fíflalætin hjá flestum, og aðrir nota sér svo trúgirni manna sér til framdráttar…RÓM var ekki byggð á einum degi, né nokkur borg…Þetta er klókur heimur fullur af lygum og láttu ekki plata þig, og hvað þá plata þig út í að skaða aðra um leið…Svona sögur eins og þú ert að breiða út, hafa drepið! Ef þú nennir ekki að lesa Talmúdinn næstu 10 árin, það er ekkert mál að redda bókinni, þá skalltu bara muna að fæst orð hafa minnsta ábyrgð og þegja….
Nýja Textamentið:Pokemonguðspjallið 8:9 “ Og hann sagði við lærisveina sína : Mér finnst afskaplega gott að grilla mér smá Samverjakjöt við og við og borða blóðsósu úr Egyptum með. ”
Finnst þér þetta fáránlegt hjá mér?
Nákvæmlega svona fáránlegur, vitnandi í bækur sem eru ekki til ,varst þú…
Ég vona að þú verðir betri maður og lærir af þessum mistökum þínum :)
Sjá, sannleikan sem þú hunsaðir algjörlega, eftirfarandi linkur, einu sinni enn:
http://freemasonry.bcy.ca/anti-masonry/van_hyning.html