Hæ.
Ég er nú ekki beint stuðningsmaður “Ísraels stjórnar”, en ég verð bara að vara ykkur við svona myndum ,sérstaklega frá einhverjum svona fremur óþekktum aðilum, þar sem mjög mikið hefur verið um myndfalsanir. Það er svo töluvert auðveldara að falsa myndir en fólk heldur, og já, eitthvað flóknara en nektarmyndir af frægu fólki…og þarna eru jú talsvert meiri hagsmunir í húfi.
Síðan þá er framferði þessara hermanna ekki sem slíkt endilega samkvæmt opinberum tilskipunum…séu þessar myndir ófalsaðar, sem ekkert er hægt að vita um.
Það er til dæmis enn vandamál í mörgum ríkjum Bandaríkjanna að hvítar löggur ráðist á svarta menn og þannig.
Það eru bara alltaf fordómafullir einstaklingar sem misnota aðstöðu sína, en það sem slíkt segir ekkert um ríkisstjórnir viðkomandi einstaklinga, hvorki Bandaríkjanna né Ísrael…
Sem sagt, ekki trúa öllu, það eru lygar á báðum stöðum, og satt að segja ótal fleiri stöðum…og það hefur oft komist upp um falsanir, á myndum og öðru. Svo athugið hver talar og hvaða raunverulegu sannanir hann hefur…
Mér sýndist þetta ekki sérlega glæsilega vefsíða, og ég þekki nú einn ansi kláran ljósmyndara úti sem gæti ef hann vildi búið sér til eitt stykki heimasíðu og sett fullt af svona myndum inn á. Án gríns! Ég held að maðurinn sé algjör snillingur, en hann segir mér að ef þú hefur lært nógu mikið sé þetta bara ekkert mál og ég býst við að það sé satt. En sumir fatta þetta ekki og hafa ljósmyndaðar “sannanir” fyrir tilvist geimvera, fljúgandi furðuhluta og ég veit ekki hvað og hvað…
Bara smá varúð.
Frið í Palestínu - Frið í Ísrael
Trúgirni og gangrýnisleysi okkar hinna fyrir áróðrinu sem flæðir frá báðum stöðum hjálpar ekkert til að koma á friði.Þvert á móti myndi smá common sense hjá þeim sjálfum og okkur hinum redda miklu…(Menn eru menn eru menn eru menn….Menn eru ekki englar né djöflar, hins vegar geta þeir logið og eru klárir við það…og það er já hægt að falsa svona mynd, ekkert mál…)
Síðan hefur það gerst að takin var mynd, og það ekki af einhverri vefsíðu út í bæ, heldur virtu fréttablaði af ungum manni í blóði sínu umkringdur Ísraelskum hermönnum…Fyrirsögnin sagði þetta vera Palestínumann, en Bandarískur faðir (Gyðingur) þekkti þarna son sinn og þetta fékkst staðfest…Kannski er svona ruglingur ekki nema von, Gyðingar eru auðvitað blandaðri þjóð, þess vegna eru fleiri rauðhærðir, ljóshærðir og svartir Ísraelar en Palestínumenn (og það eru líka til Gyðingar sem eru gulir eða jafnvel injánar (!)…Geri einhver annar betur! Ja, kannski USA…En mjög algengt look hjá Gyðingum er þetta dökkur á brúnn og brá, en hvítur, orðinn sólbrúnn af sólinni í Ísrael, eins og flestir Palestínumenn líta út…Sem fyrst jafnvel stóru blöðin hafa ,líklega óvart, gerst sek um falsanir, hvað þá að einhver klár náungi með myndavél geti ekki skellt einhverju plati á heimasíðu sína.
Ég er ekki að segja að þetta sé plat, en fyrst stóru fjölmiðlarnir hafa látið plata sig er allur varinn góður og enginn skömm í því fyrir neinn að taka sem flestu með fyrirvara.