Má finna málfræði villu í hverri grein inni á vísi.is?
Og þær virðast aldrei vera fleirri en ein. Vitlaus föll og kyn og annarskonar brot á íslenskri málfræði.
Fara menn ekki nógu vel yfir textann áður en þeir skila honum inn, eða er þetta einhver inside joke hjá blaðamönnum? Ekki það að maður sé fullkominn sjálfur og ég er ekki að kvarta.
En ég myndi telja að sum tilfelli séu léleg stafsetning (möguleg lesblinda) en sumt er að sjálfsögðu metnaðarleysi þar sem blaðamennirnir finna fréttefni, hraðskrifa það og skila því inn án þess að fara yfir það.
Varla… Ég hef séð fréttir á síðunni sem hefur verið hent út hálftíma síðar, en þær eru oftast aðeins og persónulegar. Ég man ekki alveg hvernig ein þeirra var en skal reyna að endurskrifa hana.
(Nafn einhvers bresk hefðarmanns) er eins og allir vita mikill listáhugamaður en hvað gerir hann í frítímanum? Barnaníð og kynlífsferðir til tælands og sagði félagi hans að þeir hafi keypt þar litla stúlku og látið hana ganga á milli sín og drepið hana svo. Hvað gerist svo? Manninum er veitt (einhver verðlaun)Manni svíður bara af því að vita að svona skepnur fái að ganga lausum hala.
Er ekki orðrétt frétt en hún var í þessum dúr, en daginn eftir var hún auðvitað horfin, þetta leit út eins og blogg hjá mjög reiðum bloggara, ekki frétt á netmiðli(nema kanski gagnauga og kryppunni)
Þetta var líka mjög áberandi í Grímsvatnagosi, þegar blaðamenn kepptust við að upplýsa landann um atburðarásina í sama mund og upplýsingar bárust þeim, en fóru aldrei yfir stafsetninguna. Það var þó á RÚV, en ekki Vísi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..