Mér fannst ég lesa það úr orðum þínum, en svo var greinilega ekki.
En þetta er bara runk. Þetta eru teknísk mistök og engin heilvita manneskja myndi búast við svona bylgju af gremju út af þessu máli. Eins og ég sagði áður þá er þetta uppsöfnuð gremja út af þinginu sjálfu og öðrum aðgerðum stjórnarflokkanna (og aðgerðaleysi í öðrum tilvikum).
Ég efast um að Jóhanna skipuleggi þetta allt saman eða sé með puttana í öllu. Hver ætli beri eiginlega ábyrgð á framkvæmd kosninganna, þ.e. að það væru básar en ekki klefar? Ég efast um að Jóhanna eða Steingrímur hafi séð um innanhúsarkitektúrinn.
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig