VARÚÐ!
Peace4All er úlfur í vægast sagt 100% sauðargæru.Það bara hlýtur að vera.Maður sem þekkir svo mikið sem þrjá gyðinga eða svo,og er ekki drullusama um gyðinga yfirhöfuð myndi aldrei tala eins og hann.Gyðingar eru pínulítil þjóð,aðeins 15.milljón manns dreifðir um allan heiminn.Þar af býr svo meira en þriðjungur í Ísrael,sem gerir fólksfjöldan þar svipaðan og þann sem er í Noregi.Jafnvel þótt allir heimsins gyðingar byggju í Ísrael, þá væri Ísrael smáþjóð, Svíþjóð er ekkert mikið stærri.Sjaldan hefur smáþjóð þurft að berjast eins fyrir tilveru sinni og að fá að búa í Ísrael er mikilvægt í þeirri baráttu.Eftir aðra heimstyrjöldina fluttist þangað fjöldi gyðinga, flestir einfaldlega vegna þess að önnur úrræði voru ekki fyrir þetta fólk,Evrópa var ekkert að grátbiðja um að taka við fátæklingunum aftur,því það voru þeir jú margir orðnir.Enn í dag er Ísrael griðastaður óvelkominna gyðinga.Fjöldi fátækra gyðingafjölskyldna sem fá enga aðstoð í Rússlandi hafa flutt til Ísrael.Í Rússland eru líka þvílíkar gyðingaofsóknir að gyðingar þar hafa jafnvel óttast um líf sitt og barnanna sinna,enda er mikið um hótanir, og flutt til Ísrael því átökin þar,eins skelfileg og okkur myndi finnast að búa allt í einu á stað fullum af vopnuðum hermönnum þar sem árásir hryðjuverkamanna á Ísraels veitingahús,afmælisveislur og annað slíkt hefur orðið fjölda manns að bana og þess vegna er til komin þessi ofur herstjórn til að halda lífi í almennum borgurum, og gengur hún oft út í öfgar sem gera ekkert betra.Með tilliti til þess að þessir óvönduðu hryðjuverkamenn hafa til dæmis ráðist inn í Ísraelskar “fermingarveislur”,það er það sem er hliðstætt við þær í þeirra trú,til að drepa fermingarbarnið og gestina,þá má þó skilja að fólk viti ekki almennilega hvað það eigi að gera…en vissulega hjálpar þessi ógnarstjórn í raun ekki,þó fá önnur úrræði séu svo sem í boði….Þrátt fyrir þetta allt finnst mörgum Rússneskum gyðingum þeir vera öruggari í Ísrael en í Rússlandi,svo miklar eru ofsóknirnar,enn í dag.
Sem sagt gyðingar eru vissulega smáþjóð að fjölda,og hafa alltaf verið.Þeir eru alls í dag ekki einu sinni 2/3 fleiri en gyðingarnir sem myrtir voru í seinna stríðinu.En miðað við þær smáþjóðir sem við þekkjum best, okkur sjálf og hin Norðurlöndin,þá hafa þeir það mjög slæmt og búa við mikið óöryggi og margir þeirra búa við fátækt og það er enginn tilbúin til að hjálpa þeim nema í Ísrael,þar sem reynt er að veita einhverja aðstoð.Þetta er mjög merkileg þjóð,til dæmis eru meira en 30% allra nóbelsverðlaunahafa Gyðingar,og er það svipað ótrúlegt afrek miðað við “höfðatölu” eins og við Íslendingar segjum gjarnan um okkur sjálf,og ef þessir Nóbelsverðlaunahafar væru allir Svíar.Mörg lyf,eins og pensilín,sem heimurinn væri mun verri án,voru fundin upp af Gyðingum,og meðal merkustu afreka þeirra má nefna ótal fleiri læknavísindaafrek.Þeir hafa einnig lagt mannréttindabaráttu meira lið en flestar smáþjóðir og voru flestir frægustu og fyrstu feministarnir gyðingar.Svartir menn í Ameríku væru líklega enn þrælar hefðu Gyðingar ekki stutt þá meira en allir aðrir Bandaríkjamenn og barist fyrir réttindum þeirra þegar aðrir hvítir menn héldu yfirleitt að sér höndunum.Nóbelsverðlaunin og sín ótal afrek,það ótrúlegasta sem þekkist “miðað við höfðatölu” hjá nokkuri smáþjóð þakka gyðingar þeirri miklu áherlsu sem menning þeirra leggur á menntun.Gyðingar eru greinilega engin fífl né illmenni yfirhöfuð þó setja megi út á stjórnvöld þeirra.Ég veit ekki hvort verstu hermennirnir lentu í því að vera í “fermingarveislu” eða á veitingastað þegar byssu menn æddu inn,og það myndi ekki afsaka neitt.Ég veit hins vegar að pabbi ,mamma ,manna þeirra eða afi eða hver það var,grátbað líklega ekki um að flytja til Ísrael á sínum tíma,til að fara frá ofsóknum til ofsókna og að hversu mikið sem það kemst í tísku að níðast á “ofur-smáþjóðinni”,sem veldur vissulega oft lágkúrulegri öfund,þá er það “universal” regla að “Sjaldan veldur einn þá tveir deila.” Vegna þess hve þjóðin er smá og hefur verið ofsótt eru gyðingar oft vandir að vinum,og kannski einnig vegna þess hve greindarvísatala þeirra mælist að meðaltali há,það hæsta sem um getur meðal nokkurs hóps í Bandaríkjunum,og ja,jafnvel þó greind segji kannski ekki allt talar prósentuhlutfall vísinda,lista og ýmiskonar afreksmanna meðal þeirra fyrir sig sjálf,þetta fólk er ekki fífl hvað sem einhver öfundssjúkur lýðskrumselskari vill halda,þá leggja gyðingar yfirleitt ekki í vana sinn að kynnast mönnum eins og Peace4All of náið.
Peace4All er úlfur í ömurlegri einum-of-sannfærandi MEGA-sauðsgæru.Hann ætti að hafa meiri samúð með ofsóttu fólki sem fór til Ísrael,frá ofsóknum til ofsókna fyrir ekki svo löngu,og kemur þangað enn af sömu ástæðu.Flestir gyðingar eru menn eins og ég og þú sem vilja frið,og þeir eru merkileg menningarþjóð sem sorglegt væri fyrir heiminn ef hyrfi.Fólk sem lætur fáfróða draga upp jafn alranga mynd af þeim og Peace4all gerir ætti að vara sig á því hvað það er að gera.
Peace4All,þú ert eflaust ekkert vond manneskja,en þessi leikur er ekki fyndinn.Að henda máluðum steinum,er samt að henda steinum í menn,og þú getur leikið fávita,en svona mikill fáviti er enginn.Sigrastu nú á þessum rasisma í sjálfum þér og hættu að reyna lymskulega að fá Íslensku þjóðina til að hata Gyðinga.Ísland var eitt fyrsta landið sem samþykkti Ísrael.Það heitir heil gata eftir okkur þar og þeim þykir mjög vænt um að eiga einhverja vini og hafa hingað til litið á okkur sem slíka.Auðvitað þarf að hjálpa Palestínumönnum,og auðvitað þarf að gagnrýna það sem miður fer,en hver sá sem óskar ekki gyðingunum í Ísrael alls hins besta og hefur ekki einhverja samúð með þeim er einfaldlega ekki alvöru mannvinur,og ætti að horfast í augu við það.Peace4All,ég sé í gegnum þetta kynþáttahatur þitt sem þú ert lymskulega að reyna að smita aðra af,og ég ráðlegg þér að hætta því.Ég óska þess að þú verðir einhverntíman góð og hamingjusöm manneskja en ÞETTA ER EKKI FYNDIÐ LENGUR.Eins og gyðingarnir halda áfram að heilsast og kveðjast,eftir öll þessi ár af ofsóknum,með drauminn um frið sem getur ekki dáið þó lífið sé murkað úr þriðjungi þjóðarinnar,já,fyrir ekki lengra síðan en þegar amma og afi þinn voru að byrja saman,“Shalom”,sem þýðir,orðið sem gyðingar segja meira en allir aðrir,nema ef vera skyldi á hippatímanum :Friður. Manneskja sem hatar gyðinga hefur engan alvöru frið í hjarta sínu.Að segja það ekki hreint út en leika eitthvað fífl og draga upp kolranga mynd af fólkinu er ennþá fyrirlitlegra,þar sem gagnrýnislausar hópsálir sem hugsa aldrei en éta allt eftir öðrum eftir því hvernig tískuvindarnir og egóið blása gæti trúað hverju orði.Reyndu nú að þroskast “Peace” 4 all,og farðu að standa undir nicki!