Sko, forfeður okkar voru víkingar og írskir þrælar. Ef þrælarnir hefðu ekki verið írskir (þ.e.a.s. hvítir og kristnir og almenilegt fólk upp til hópa) værum við þá kanski með minnihluta-kynþátta(haturs) eitthvað vandamál hér á ísa-köldu landi? Svona eins og í stóra landinu í vestri (U.S. of A.)?

Annað mál sem máli skiptir er trúin. Sem betur fer þurfti hvorki stríð né þjóðarmorð til að við yrðum kristin, það var bara ákveðið á Alþingi (með ýmsum málamiðlunum).
Síðan koma siðaskiptin og eftir smá deilur og áflog og læti eru hólabiskup og synir hans háls-höggvnir og potað undir græna torfu. Ef að ekki hefði verið bundinn (eða höggvin) endir á þessa deilu, værum við kanski með trúarbragða vandamál svipað og er á írlandi. Kaþólikar á norðurlandi og mótmælendur á suðurlandi. Allir að rífast um fóstureyðingar og hvaðeina sem þeim dettur í hug.

Ef Hitler hefði ekki byrjað seinni heimstyrjöldina værum við þá í sömu vandræðum og færeyingar og grænlendingar. Værum við (Oh…the Horror) DANIR ???

P.S. Mér finnst eins og allir séu að gleyma því að það búa fleiri en ísraelar og palistínumenn fyrir botni miðjarðahafs. Hvað með með hina kristnu?

P.P.S. EKKI FARA AÐ RíFA KJAFT á KORKINUM MíNUM !!!!!