Haider er nú varla svo voðalegur að hann komist inn á topp 5 listann. Hvað með:
1. Radovan Karadic, leiðtoga Bosníu-Serba?
2. Milosevic?
3. “Andesfjallaókindina”? (Nauðgaði og drap fjölda af ungum stúlkum í Andesfjöllum)
4. Jean-Marie LePen - þú kannast við hann, er það ekki, skoðanabróðir þinn frá Frakklandi (ef ég man rétt, þá vill hann losna við alla araba og múslima)?
Um illsku fyrstu tveggja (og þess síðastnefnda) má svo sem endalaust deila, þar sem ekki er búið að dæma í máli þeirra.
Og ég vil benda þér á, að Omar, leiðtogi talibana, er ekki arabi, þar sem að Afganir eru ekki arabar frekar en Íranir. Um það hve mikill múslimi hann var má líka deila, þar sem að hvergi í Kóraninum er að finna bann við tónlist og söng og hvergi er sagt að fólk sem hafi drýgt hórdóm skuli drepið.
Svo er þessi listi auðvitað alvarlega gallaður að því leytinu til, að einungis núlifandi menn eru á honum - en sem betur fer, þá eru nú verstu illmennin dauð og grafin: Hitler og Stalín. En svo skemmtilega vill til, að Stalín stundaði nám í guðfræði og Hitler þóttist oft vera að fullkomna sköpunarverk Guðs með því að útrýma gyðingum. Báðir þessir menn höfðu djúpar og sterkar rætur í kristni.<br><br>Þorsteinn.