Afhverju blandaru alltaf öðrum inn í hlutina? í stað þess að verja bara það sem þú styður en ekki segja að þetta sé skárra en hitt út af því.
Reyndu frekar að segja mér afhverju nýja norska seðlabankafíflinu er ekki sagt upp því hann er ekki að sinna vinnu sinni- þ.e.a.s lækka stýrivextina- um 10% eins og þau lofuðu að yrði gert í gær.
Hvar þessi skjöldur sem átti víst að koma yfir heimilin er? Ástandið heimilina fer bara versnandi.
Hvar eru allar þessar helvítis tillögur sem Vinstri Grænir sögðust ætla taka með sér í ríkisstjórnina.
Þetta er bara sorlegt og mér sýnist að þetta fólk XS og VG sé bara að berjast fyrir einhverju kjaftæði: nektardansarbanni, skattahækunum(sem skapa enn meiri samdrátt og fleiri uppsagnir)
Hvar er svo þessi mikla krónuhækkun sem Steingrímur ætlaði að láta verða að veruleika?
Hvar eru þessi 6000 störf sem áttu að skapast
Hvar eru þessar háskólasumarannir sem Katrín Jakobs lofaði.
Hvar er þessi hjálp sem átti að hjálpa heimilim við að greiða lánin sín
Hvar standa núna samræður um ESB,helguvíkarmálið ofl.
Þú ert að gagnrýna þarna gömlu ríkisstjórn XD og XS- sem ég er sammála því sú ríkisstjórn voru fáranlingar en samt mun skárri en nú sitjandi hér er verklisti ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar:
. Setning neyðarlaganna veitti FME heimild til að taka yfir starfsemi banka
2. Settur var upp upplýsingavefurinn
http://www.island.is með miklu magni af upplýsingum um efnahagsvandann og áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
3. Símaver var sett upp í utanríkisráðuneytinu - 30 starfsmenn unnu á vöktum við símsvörun frá kl. 8 - 22 alla virka daga fyrstu vikurnar eftir hrunið
4. Fjölmiðlamiðstöð var opnuð fyrir erlenda blaðamenn í Miðbæjarskólanum frá 7. - 15. október
5. Nýtt embætti sérstaks saksóknara var stofnað
6. Sérstök rannsóknarnefnd var skipuð til að rannsaka aðdraganda hruns bankanna
7. Frumvarp dómsmálaráðherra um skuldaaðlögun hefur verið kynnt þingflokkum
8. Samið var við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lánafyrirgreiðslu og efnahagsáætlun til tveggja ára
9. Alþjóðlegt matsfyrirtæki, Oliver Wyman, var fengið til að vinna endurmat á eignum og skuldum nýju bankanna
10. Tilmælum var beint til viðskiptabankanna í eigu ríkisins um að frysta afborganir skuldara á myntkörfulánum
11. Óskað var eftir samstarfi við stjórnvöld í Lúxemborg um að veita rannsóknaraðilum nauðsynlegan aðgang að gögnum
12. Dráttarvextir voru lækkaðir með lagabreytingu
13. Víðtæk endurskoðun hefur verið hafin á löggjöf á fjármálamarkaði
14. Reglugerð var sett um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar
15. Vinnumálastofnun var efld vegna aukins álags
16. Atvinnuleysisbætur greiddar á móti hlutastarfi til að sporna gegn atvinnuleysi
17. Réttur sjálfstætt starfandi einstaklinga til atvinnuleysisbóta var rýmkaður
18. Atvinnuleysisbtækur voru hækkaðar um áramót
19. Ýmis vinnumarkaðsúrræði voru efld
20. Réttur fólks til atvinnuleysisbóta samhliða þátttöku í ýmsum verkefnum var tryggður
21. Sjálfboðaliðastörf voru viðurkennd sem virkt vinnumarkaðsúrræði
22. Boðið var upp á atvinnutengda endurhæfingu
23. Tryggður var réttur til atvinnuleysisbóta samhliða námi
24. Skilyrði fyrir búferlastyrkjum voru rýmkuð
25. Starfshópur var skipaður um leiðir til að sporna við atvinnuleysi
26. Ný vísitala tekin upp við reikning á húsnæðislánum
27. Íbúðalánasjóði voru veitt úrræði til að bregðast við vegna greiðsluvanda einstaklinga
28. Tilmælum var beint til fjármálastofnana um úrræði við viðskiptavini í greiðsluerfiðleikum
29. Lánstími greiðsluerfiðleikalána var lengdur
30. Íbúðalánasjóði var veitt heimild til að annast leigumiðlun íbúðarhúsnæðis
31. Íbúðalánasjóði var veitt heimild til að taka yfir íbúðaveðlán fjármálafyrirtækja
32. Starfsemi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var efld
33. Íslendingum erlendis var veitt fjárhagsaðstoð
34. Bætur, styrkir og frítekjumark hækkuðu um 9,6%
35. Lágmarksframfærslutryggingar lífeyrisþega hækkuðu um 20%
36. Reglum breytt þannig að úttekt á séreignarsparnaði skerði ekki lengur lífeyrisgreiðslur
37. 100.000 króna frítekjumark á atvinnutekjur örorkulífeyrisþega framlengt
38. Stimpilgjöld voru felld niður tímabundið
39. Skuldajöfnun barnabóta var felld niður
40. Skuldajöfnun vaxtabóta á móti lánum Íbúðarlánasjóðs var felld niður
41. Tilmælum beint til innheimtumanna um aukinn sveiganleika í samningum um gjaldfallnar skattakröfur
42. Heimild var veitt til að endurgreiða vörugjöld og virðisaukaskatt af útfluttum ökutækjum
43. Gjalddögum var frestað og álag á aðflutningsgjöldum, staðgreiðslu og virðisaukaskatti var lækkað
44. Persónuafsláttur hækkaði ríflega
45. Lögum um lífeyrissjóði var breytt til að liðka fyrir stofnun endurreisnarsjóðs
46. Breytingar á lífeyrissjóðslögum vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar við 60 ára aldur
47. Fyrirtækjum var gert kleift að gera ársreikjninga upp í erlendri mynt
48. Stutt var við sparisjóði með framlagi
49. Innlausn lífeyrissparnaðar var heimiluð við 60 ára aldur
50. Samkeppniseftirlitið kynnti skýrslu undir titlinum „Öflug uppbygging - opnun markaða og efling atvinnustarfsemi"
51. Samkeppniseftirlitið beindi tíu meginreglum um samkeppni til viðskiptabanka í eigu ríkisins
52. Skýrsla Samkeppniseftirlitsins um krosseignatengsl kynnt
53. Geðsvið Landsspítalans var eflt og veitt var sálfræðiráðgjöf vegna áfalls
54. Bráðaþjónusta við fólk sem lenti í tímabundnum erfiðleikum vegna umrótsins
55. Heilbrigðisstofnanir voru settar í viðbragðsstöðu
56. Sameiginlegum tilmælum var beint til stofnana heilbrigðisráðuneytisins vegna velferðar barna
57. Boðið var upp á fyrirlestra um viðbrögð vegna álags, kvíða, depurðar og svefnerfiðleika
58. Heilbrigðisstofnanir greiddu lyfjafyrirtækjum upp skuldir svo fyrirtækin gætu haldið uppi lyfjadreifingu í landinu
59. Styrkir Sjúkratrygginga Íslands vegna hjálpartækja hækkaðir, m.a. vegna gengis íslensku krónunnar
60. Styrkir Sjúkratrygginga v. næringarefna og sérfæðis voru hækkaðir
61. Sprotafyrirtæki fengu heimild til að ráða starfsmenn af atvinnuleysisskrá án þess að bætur yrðu skertar
62. Framlög í Tækniþróunarsjóð voru aukin
63. Sérstakir styrkir voru skilgreindir hjá Tækniþróunarsjóði til að koma til móts við þarfir í núverandi efnahagsástandi
64. Framlög voru tryggð til Frumtaks-samlagssjóðs sem fjárfestir í lengra komnum sprotafyrirtækjum
65. Komið var á fót frumkvöðlasetrum í samstarfi við Landsbankann og Glitni
66. Fjárfestingasamningur gerður vegna álvers í Helguvík
67. Auknum fjármunum veitt til kynningar á Íslandi sem ferðamannastað
68. Heimild til að veita aukanámslán fyrir tveggja mánaða framfærslu hjá nemum erlendis
69. Hækkun á vaxtastyrk vegna aukins fjármagnskostnaðar á yfirdráttarlán námsmanna
70. Skerðingarhlutfall námslána var lækkað úr 10% í 5%
71. Forsendum í gengisútreikningum námslána var breytt - tryggði um 23% hækkun í þágu námsmanna
72. Aukinn sveigjanleiki var veittur vegna greiðsluerfiðleika námsmanna
73. Tekjutengdar afborganir af námslánum voru lækkaðar
74. Settur var á fót bakhópur til að fara yfir úrræði og námsframboð á framhaldsskólastigi
75. Tryggðar voru sveigjanlegar fjárveitingar til framhaldsskóla á vorönn 2009 til að allir sem þess óskuðu fengju inngöngu í framhaldsskóla
76. Sérstök verkefnisstjórn var skipuð til að leggja drög að stefnumótun ráðuneytisins á sviði háskólamála og vísinda vegna breyttra aðstæðna
77. Stofnaðir voru þrír vinnuhópar sem var falið að leggja fram tillögur um aðgerðir sem leitt gætu til aukinnar hagræðingar í öllum málaflokkum
78. Lögum var breytt til að losa sveitarfélög undan því að greiða verðbætur á byggingarlóðir sem skilað er
79. Lögveð vegna fasteignaskatts var lengt úr tveimur árum í fjögur
80. Heimild var veitt í lögum til hækkunar útsvars sveitarfélaga og auknu fé sett í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
81. Mannaflsfrekar framkvæmdir voru settar í forgang við úthlutun fjár til nýrra samgönguframkvæmda
82.Nefnd skipuð um átak í þorskeldi með áherslu á seiðaeldi
83. Ákveðið að AVS-rannsóknasjóður geti stutt við rannsókna- og þróunarstarf í kræklingarækt
84. MATÍS ohf. bauð fram aðstöðu fyrir meistaranema í samstarfi við fyrirtæki, sjóði og háskóla
85. AVS-rannsóknasjóður lagði aukna áherslu á styttri verkefni og slíkar umsóknir njóta forgangs við úthlutun á styrkjum
86. Hámarksafli í þorski var aukinn um 30 þúsund tonn, úr 130 þúsund tonnum í 160 þúsund tonn
87. Hvalveiðar í atvinnuskyni hafa verið heimilaðar til ársins 2013
88. Íslensk stjórnvöld hafa staðið fyrir fjölda funda í sendiráðum erlendis til að útskýra stöðu mála á Íslandi
89. Aðstoð var veitt til Íslendinga erlendis, t.d. veittu sendiskrifstofur Íslendingum erlendis lán að uppfylltum ákveðinum skilyrðum
90. Krónunni var fleytt samhliða því að gripið var til aðgerða til að styrkja gengi hennar og koma í veg fyrir fjármagnsflótta
91. Virtur bankasérfræðingur, Mats Josefsson, var skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna
92. Samið var við Evrópusambandið um lausn Icesave-deilunnar og tryggt að tekið verði tillit til íslenskra hagsmuna
93. Mikil hagræðing í ríkisrekstri umfram það sem áætlað var til þess að mæta kröfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ríkisfjármálum fyrir árið 2009
94. Lán allt að þremur milljörðum dollara tryggð frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, Rússlandi og Póllandi
95. Bankaráðum hinna nýju banka var gert að setja sér skýrar viðmiðunarreglur um fyrirgreiðslu við fyrirtæki í landinu
96. Ákveðið var að skipa óháða umboðsmenn viðskiptavina í hverjum banka
97. Lög voru sett til að heimila ríkissjóði að styðja við málsókn á hendur breskum yfirvöldum vegna beitingu hryðjuverkalaga
98. Þingmenn og ráðherrar tóku á sig tímabundna launalækkun um 5-15%
99. Verkefnastjóri var ráðinn til að fylgja eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar og tryggja aukið upplýsingaflæði
100. Sett var í gang vinna við málshöfðun gegn breskum stjórnvöldum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu
Sýndu mér nú endilega verklista núsitjandi ríkisstjórn sem þú ert alltaf að verja.