Hvað meinaru?
Ég veit ekki hvað hann átti við að xD ætti fiskinn í sjónum, það er náttúrulega skammarlegt og kannski á hann eftir að biðjast afsökunar á þessum orðum, hver veit.
En það kemur ekki öðrum málefnum við og rökum sem hann hefur í þeim. Mér finnst eignaskattur einn fáránlegast skattur af öllum sköttum. Endalaust að kreista peninga út úr fólki bara út af því að það á eitthvað. Auk þess sem þetta bitnar verst á gömlu fólki sem margt á húsin sín, en þetta snertir ekki þorra þjóðarinnar, sem er skuldsett upp fyrir haus.
Ég sé ekki hverju á að ná fram með þessum skatti öðru en að auka Ríkisumsvið og blóðmjólka þjóðina
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig