Sem sagt ef einhver hefur meiri ástæðu en ég til þess að vera reiður þá er eðlilegt að hann grýti eggjum og mat í friðaða byggingu? Það er ekkert að því að mótmæla, ég er alveg sammála, við rétt tækifæri myndi ég örugglega sprengja upp þinghúsið. Hins vegar sé ég enga ástæðu til þess í augnablikinu, þessi kreppa er svo smávægileg miðað við margt sem við höfum gengið í gegnum að þetta er virkilega hlægileg hegðun.
Ef þú skoðar aðeins ofar á þessum kork sérðu að ég vísa í blogg þar sem sýndar eru myndir af friðsamlega hluta mótmælanna. Ég er að gera athugasemd við þrennt, í fyrsta lagi er ég að gera grín af heimsku krökkunum sem voru þarna að henda eggjum, í öðrum lagi er ég að gera grín að þeirri staðreynd að mogganum tókst að láta mótmælin líta út eins og skrílslæti með því að sýna bara myndir af heimskum krökkum, í þriðja lagi er ég er að gera grín af heimsku fólki sem réttlætir það sem heimsku krakkarnir voru að gera.