Ég fór á síðuna.. Þar stendur að þjóð eigi aðeins að standa af “Innfæddum” og eikka yattayattayatta..
Veistu.. Mér bíður við minni eigin þjóð, að leyfa sér að rita slíkan óþvera á netið á borð við SA.
Þér hlýtur þá að bjóða við öllum þjóðum, og þola ekki óþverran sem er ritaður í sögubækur, mannfræði, félagsfræði og íslenska orðabók, því ef þú hefðir fyrir því að opna slíkar bækur þá sérðu að hugtakið “þjóð” er skilgreint út frá þeim hópum fólks deilandi sama ætterninu, sögu og tungumáli sem stofnað hafa samfélög á sérstökum landsvæðum. Samanstanda slíkir hópar heimsins ekki mestmegnis af “innfæddu” fólki landsvæða? Hugtakið “innfæddur” á einmitt við einstakling sem tilheyrir upprunarlegum hópi eða ættbálk sem gert hefur sér fasta búsetu á ákveðnu landsvæði og stofnað samfélag sem deilir fyrrnefndum einkennum. Hvað heldurðu að stór hluti mannhópa sem flokkast undir þá skilgreiningu “að deila sögu, menningu, tungumáli og ætterni” séu innfæddir (uprrunarlegir íbúar sem náð hafa fastri búsetu) á ákveðnum landsvæðum miðað þá sem eru það ekki?
Þannig að, ég er frjálslyndur hippi sem veit ekki neitt.
Ég sagði aldrei að þú vissir ekki neitt, ég var einfaldlega að benda þér á hræsni frjálshyggjunar og vinstristefnunar, sem gagnrýna ávalt aðra hópa fyrir “fjandsemi og kúgun” en á sama tíma sýna ekkert nema fjandsemi og kúgun í garð þeirra sem hafna þeirra hugmyndum um lífið og tilveruna, líkt og fjandsamlegur hrokinn í tilsvörum þessa Vilhems og beinar árásir þínar úthrópandi fólk sem nasista og “dipshit” endurspegla vel. Ég sé ekki betur en þráðurinn hafi verið að gefa til kynna þjóðernissinnaða vefsíðu, líklegast fyrir þá sem hafa áhuga á slíku, en þið sem þykist verja “einstaklingsfrelsi”, “mannfrelsi”, “tjáningarfrelsi” og “jeminn” eruð nefninlega fyrstir til að stökva upp og ráðast á fólk með hroka, svívirðingum og jafnvel hótunum vegna þess að það aðhyllist heimsýn sem er ykkur ekki að skapi, án þess þó að það hafi gert nokkuð á ykkar hlut.. allt á meðan þið þykist einmitt vera að berjast á móti slíkri hegðun. Fjandans ómerkir hræsnarar sem eruð aðeins að vernda eigið egó-drama.