Ekkert nema tittlingaskítur, í fyrsta lagi ætti hún að fá að njóta vafans, það er ekki hægt að dæma um svona án þess að sjá framan í manneskjuna.
Í öðru lagi gera fréttamenn svona hluti oft, það er að stilla upp fréttaefninu fyrir myndskot, þetta er gert út um allan heim, ég skil ekki hvaða skaða það hefði gert hefði hún fengið þessa krakka til að kasta eggjum, þeir voru að því 10 mínútum fyrr og byrjuðu örugglega aftur 10 mínútum seinna, þetta hafði engin sérstök áhrif á framvindu mála. Kommon ekki haldið þið að það sem þið sjáið í fréttunum sé alltaf satt og rétt og fullkomin mynd af því sem raunverulega gerðist? Veruleikafyrring.
Aumingja konan algerlega hálshöggvin af misgáfuðum og misskemmtilegum bloggurum og þarf að gjalda fyrir það með starfi sínu.
Íslenskir bloggarar eru alveg meistarar í að gera úlfalda úr mýflugu, minni bara á hundin Lúkas, þetta er einn af höfuðgöllum íslenskrar menningar og þætti mér gaman ef helmingurinn af þeirri vinnu og þeim tíma sem fer í að skrifa skít á netið færi í að skrifa eitthvað merkilegt og til góðs fyrir þjóðfélagið.