Til hamingju með þessa afsökunarbeiðni!
Einhver besti vinur manns er hæfileikinn til að biðjast afsökunar og sjá að maður hafði ekki rétt fyrir sér.
Við búum öll yfir einhverjum fordómum,sum leynum við þeim bara betur,og aðrir leyna þeim jafnvel fyrir sjálfum sér.Þú ert farinn að takast á við þína og það er frábært,það ná alls ekki allir svo langt í glímunni við sjálfa sig.
Spurðu þig hver eða hvað það er sem þú hatar í raun eða hræðist,maður sem þekkir,líklega ekki einn einasta araba,en flytur samt beiskju þína yfir á þá.En það er liðin tíð.Einhvern tíman muntu finna svarið,en leggðu þig ekkert allan fram við það,það kemur á sínum tíma og nú er bara að bæta sjálfan sig,en enginn getur eitt tíma sínum betur en þannig.Hvernig þú hyggst gera það og finna lífi þínu meiri tilgang verður þú að ræða við sál þína,samvisku og/eða Guð,en ekki okkur hér.
Gleðilegt nýtt ár.