Þessi mynd er ekki gerð fyrir þig að gleypa og þú átt ekki að kyngja neinu án þess að vita hvað það er. Þessi mynd er að láta þig vita að hlutir hafa verið fucking skrýtnir í BNA frá frelsisstríðinu.
Þér er SAGT að afla þér sjálfum upplýsinga TREKK í TREKK í myndinni. Heimildarmyndir sem þessi sem fjalla um samsæri færa rök GEGN stjórninni. Þetta er ekki spurning um að vera hlutlaus, þetta fólk er alls ekki hlutlaust sem á þátt í þessu. Þetta er spurning um að þau eru að segja þér ástæður og gögn sem ganga ÞVERT á það sem stjórnin í BNA er að fæða íbúum þess í gegnum sjónvarp.
Í guðanna bænum þetta er ekki hlutlaus mynd, ekki horfa á hana sem slíka. Það er ekki verið að fjalla um sæt lítil ljón og hvernig þau fæðast og deyja, heldur hvernig allt sem þessi stjórn gerir gengur þvert á það sem viðurkenndir og lærðir menn segja. Þú kemur ekki þínu máli til neins með því að vera hlutlaus, þú ert MEÐ eða á MÓTI. Þú ert greinilega á móti, svo aflaðu þér upplýsinga AF HVERJU þú ert á móti. Hvar færðu gögn sem segja þér að allt sem menn þarna uppi, sem græða á svona atburðum, segja sé satt.