Held að það ætti að vera nokkuð augljóst afhverju þessum korki hafi verið eytt. Í honum var ráðist gegn heilu trúarbragði án nokkurra gáfulegra skýringa vegna þess að nokkrir rugludallar sem segjast vera múslimar eru hryðjuverkamenn.
Svo er líka asnalegt að ætla sniðganga Íslamska veitingastaði því það er enginn staður sem ég veit um á jarðkringlunni sem auglýsir sig sem “Íslamskann veitingastað.” Hafið þið einhverntímann séð kristinn veitingastað?
Ef þessi einstaklingur hefði í raun verið að mótamæla kúgun þá hefði hann átt að skrifa um að við ættum að sniðganga vörur og matvæli frá Sádí-Arabíu eða Íran, en að ráðast á trúarbrögð hundruð milljóna manna á þennan hátt er ekkert nema dulinn rasismi gagnvart múslimum.