Ég var kominn með upp í kok af vitleysunni í framsókn fyrir kosningar en núna er mér nóg boðið af þeirri vitleysu sem rennur út úr þessum vitlausu vitleysingjum. Þeir eru svo sárir að þeir geta ekki hamið sig í yfirlýsingum um að þeir hafi verið sviknir þvers og kruss af Sjálfstæðisflokknum og að hin illa “Baugsstjórn” hafi tekið við völdum. Það voru nú komnar ansi margar holur í þetta feigðar fley sem framsókn var en nú eru þeir sokknir alveg á botninn í vitleysunni.