STYRKTARSÝNING fyrir Eddu Björgvins
Borgarleikhúsið og Edda Björgvinsdóttir standa fyrir styrktarsýningu á leikritinu „Alveg Brilljant Skilnaður“ miðvikudaginn 16. Maí kl. 20:00 á Nýja Sviði Borgarleikhússins og mun allur ágóði sýningarinnar renna til leikkonunnar Eddu Heiðrúnar Backman.
Við biðjum alla viðtakendur þessa bréfs að sýna samstöðu og samhjálp í verki og kaupa miða á þessa allra síðustu sýningu á einleiknum og bendum vinsamlegast á að þeir sem ekki komast á sýninguna geta greitt fyrir miða og mun sú upphæð fara inn á sérstakan reikning sem stofnaður hefur verið til styrktar leikkonunni Eddu Heiðrúnu. Vinsamlegast sendið öllum á póstlistum ykkar þetta bréf. Sími miðasölu Borgarleikhússins er: 5688000
Með vinsemd og virðingu
Edda Björgvinsdóttir og forsvarsmenn Leikfálags Raykjavíkur, Borgarleikhúsinu