Vinur minn sendi mér þetta og hvatti til að senda áfram til að koma þessum
áríðandi skilaboðum á framfæri.

Blóðtappi í heila - lesa og læra um einkennin

Heilablóðfall : Munið ÞRJÚ FYRSTU SKREFIN

Hvernig þekkir maður heilablóðfall:

vinkona mín sem var að fá heilablóðfall hrasaði við og datt og hún sannfærði viðstadda um að það væri allt í lagi með sig, hún hefði bara hrasað út af nýju skónum sínum. Síðar um kvöldið hringdi eiginmaður hennar og sagði að hún hefði látist og dánarorsökin væri heilablóðfall. Ef þeir sem voru með henni hefðu þekkt einkenni heilablóðfalls þá hefði kannski verið hægt að bjarga henni. Heilablóðfall dregur suma til dauða en lamar aðra.

Taktu þér smástund til að lesa eftirfarndi:

Taugasérfræðingur segist geta snúið við afleiðingum heilablóðfalls ef hann fær sjúklinginn nógu fljótt, galdurinn sé að greina blóðfallið og koma sjúklingnum á sjúkrahús innan þriggja klukkustunda.

HVERNIG HÆGT ER AÐ ÞEKKJA HEILABLÓÐFALL þrjú mikilvæg skref sem þú skalt
muna:

Sá sem vill komast að því hvort um heilablóðfall er að ræða á að spyrja
þriggja einfaldra spurninga:

B* Biddu viðkomandi að BROSA e. Ask the individual to SMILE.

T* Biddu manneskjuna að TALA, SEGJA EINFALDA SETNINGU Í SAMHENGI (sólin skín í dag en í gær var rigning)

L* Biddu hana/hann að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM UPP

{ ath : Annað merki um heilablóðfall:

Biddu viðkomandi að reka út úr sér
tunguna og ef hún er bogin til annarrar hliðarinnar getur það líka verið
merki um heilablóðfall }

Ef viðkomandi á í vandræðum með eitt eða fleiri af þessum fyrirmælum hringdu
þá í 112 og lýstu einkennunum.

Hjartasérfræðingur hefur sagt að ef allir sem fá þetta bréf sendi það til 10
manns muni það bjarga amk einu mannslífi.