Ég hef verið að horfa á Stöð 2 núna um helgina í þessari ókeypis kynningu þeirra. Það eina sem ég finn hins vegar að stöðinni eru ákriftargjöldin!
Vissulega er þetta gott efni, en ekki skil ég fólk sem er tilbúið að reiða fram 4.290 kr. fyrir einn mánuð í áskrift. Þessi sjónvarpsstöð er með ein hæstu ef ekki hæstu áskriftargjöld í allri Evrópu. Ég vil því skora á Íslenska Útvarpsfélagið að lækka ákriftargjöldin enda væri það besta leiðin til að fjölga áhorfendum.