Ég get því miður ekki horft á youtube en ég sé hvað þetta myndband gengur útá eftir að hafa lesið svörin. Það var einmitt umræða um þetta á hiphop.is þar sem margir lesendur eru graffarar og ég vogaði mér að benda þeim á að það væri hrein og bein óvirðing að bomba/krota á einkaeignir og lét fylgja með að ég hafi oftar en einusinni séð ljótt krot á KIRKJUM sem mér finnst alveg þvílíkt fyrir neðan allar hellur óháð því hvort ég sé trúuð eða ekki og ég fékk bara flóð af skítkasti til baka, fólk sem sagði að þeir sem ekki graffa “skildu ekki listina” og eitthvað. Fullt af svona, “Banninu verður ekki létt þó við krotum bara á löglega” og þráðurinn sjálfur var uppástunga á það hvort allir ættu ekki að taka sig til og graffa Á ALLT í ‘uppreisnarskyni’.
Fáránlegt.. Algjörlega hugsandi um rassgatið á sjálfum sér og ekki að spá í því hvað fólk sem vill ekkert með þessa gerð af list (í þeim tilvikum sem þetta er vel gert) hafa á húsinu sínu, bílskúrnum eða öðrum eignum, þarf að borga fyrir að láta mála yfir þetta. Ég t.d þurfti að fara framhjá húsi alltaf á leiðinni í vinnuna fyrir svolitlu og tók alltaf eftir merki á hurð á sama stað frá crewi sem ég reyndar persónulega þekkti en tók líka eftir því að það var málað yfir það svona 6 sinnum en það kom alltaf aftur á sama stað og stendur enn ! Fáránlegt, pælið í að gera þetta alltaf aftur og aftur þrátt fyrir að það sé málað yfir þetta.
Mér finnst nefnilega margt af þessu ógeðslega flott og synd að sumir þeir sem eru mjög hæfileikaríkir haldi að með því að bomba á allt og alla fái þeir leyfi fyrir þessu. Það eru nefnilega margir sem finnst þetta flott en að sjálfsögðu verða alfarið á móti þessu þegar það er krotað á þeirra eigin eignir.