http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061103/FRETTIR01/61103038/1091
Ungir ökumenn fái aðeins kraftlitla bíla
“Nýir ökumenn fá einungis að aka kraftminni bifreiðum á ákveðnum tímum sólarhrings og flytja takmarkaðan fjölda farþega yngri en 20 ára og ökutæki þeirra gætu verið gerð upptæk. Þetta kemur fram í nýjum drögum að frumvarpi samgönguráðuherra um breytingar á umferðarlögum. Þá þarf ökumaður með fjóra refsipunkta að taka námskeið og bílpróf upp á nýtt.
Samgönguráðherra hefur þegar undirritað breytingar sem taka gildi 1. desember og fela í sér hækkun hraðaksturssekta í allt að 110 þúsund krónur og allt að 140 þúsund fyrir ölvunarakstur.
Viðmiðunarmörk vegna hraðaksturs lækka úr tíu í fimm km á klukkustund. Þar sem hámarkshraði er 90km verður nú sektað ef keyrt er á 96km hraða í stað 101km áður.
Ágúst Mogensen formaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa segir ofsaakstur, þar sem menn aka á allt að tvöföldum hámarkshraða, hafa aukist og vera áhyggjuefni. Hann fagnar nýjum drögum samgönguráðherra að frumvarpi sem felur í sér takmarknir á heimild byrjenda til að aka bifreið.
Í þeim felst meðal annars að byrjendur mættu einungis aka á ákveðnum tímum sólarhrings, flytja takmarkaðan fjölda farþega undir tvítugu, takmörkun á krafti bifreiðarinnar og mögulega heimild lögreglu á að gera ökutæki upptæk. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir takmörkunum á útgáfu fullnaðarskírteinis og að bráðabirgðaökuskírteini fyrir byrjendur verði gefin út til þriggja ára, í stað tveggja áður. Á síðustu árum hafa orðið að meðaltali 20-30 banaslys á ári og yfir 100 slasast alvarlega. Þriðjungur banaslysa í umferðinni er af völdum ökumanna yngri en 24 ára.”
Discuss.
sjálfum finnst mér margt þarna…kjaaaaaftæði. Sem dæmi, hvernig eiga allir að komast til og frá vinnu ef bara má keyra á afmörkuðum tímum? “Klukkan er meira en tólf, við verðum að gera bifreiðina upptæka”.