setja öll skip undir sama hat
Það kom hvergi fram í mínum texta.
Smkv. Wikipediu er þetta skip vopnað með fjórum vélbyssum, a.m.k. 5 eldflaugaskotbúnuðum ásamt annrs konar vígbúnaði, það er notað til að flytja hermenn sem allir eru vopnaðir með sjálfvirkum rifflum, allt í þeim tilgangi að stunda hernað (hernað sem felur í sér að drepa helling af fólki).
Fáviska þín á hernaðarsviðinu skín hér allsvakalega.
Skip LHG eru vopnuð 40mm Bofors loftvarnarbyssum. Um borð eru rifflar, hríðskotabyssur, skambyssur o.fl.
LHG er ætlað að beita ofbeldi þegar það er nauðsynlegt, en ekki þegar það er ónauðsynlegt. Sama má segja um lögregluna. Hernaður snýst ekki um að drepa ,,helling af fólki.'' Hann snýst um að ná tilteknum markmiðum, s.s. halda sjálfstæði, vernda líf og eignir og svo framvegis. Sama má segja um aðra valdbeitingu af hendi ríkisvaldsins.
Þessi röksemdafærsla þín er meingölluð.
Ég fæ ekki betur séð en að þú sért að þrugla eitthverja vitleysu.
En þú ert þó ekki að reyna að verja gjörðir Kínverjana sem skutu Tíbetana? Staðreyndin er sú að Tíbetarnir voru ekki vopnaðir. Kínverjarnir skutu ekki einusinni viðvörunarskotum, þeir héldu áfram að skjóta eftir að komið hafði í ljós að Tíbetarnir voru ekki vopnaðir og þeir komu mönnunum ekki til hjálpar þar sem þeir lágu í sárum sínum.
Þetta er hernaður, hernaður sem mótmælendurnir, sem þú varst að gagnrýna í korknum, voru á móti.
Já þetta er býsna athyglisvert hjá þér. Þarna er um að ræða landamæraverði sem skjóta á einhverja menn, sem eru hugsanlega að fara yfir landamæri á ólöglegan hátt.
Við Íslendingar höfum skotið og reyndar drepið dágóðan slatta af fólki fyrir að brjóta gegn okkar lögum gegnum tíðina. Ekki höfum við að vísu drepið neinn á síðustu árum, en við höfum gatsigtað nokkra togara á ólöglegum veiðum og skotið óstýrláta dráttarbáta.
Ekki það að ég sé hér að réttlæta ólöglegt hernám kínverska alþýðulýðveldisins á Tíbet. Staðreyndin er sú að blóðsúthellingar munu engan enda taka. Engar líkur eru á því, og ekkert hefur nokkurn tíman bent til þess. Sjálfsvarnarrétturinn er hinsvegar heilagur. Þú getur ekki afsalað annari manneskju réttinum til að verja sig.
Meirihluti Íslendinga vill fá að verja líf sitt gangi einhver gegn því, það hefur sýnt sig marg oft. Það sama á við Bandaríkjamenn.
Að neyða fólk til að taka upp óeðlilega og heimskulega hugmyndafræði, sem er víst svona vinsæl meðal mótmælenda og annarra aumingjalegra þjóðfélagshópa er ekkert annað en ofbeldi og öfugmæli.