Of margir Palestínumenn ala börn sýn upp í hatri á Ísrael, en margir þeirra vilja bara lifa lífinu og vinna t.d. í Ísrael, en öfgamennirnir eyðileggja þessi tækifæri eins og sýndi sig þegar Ísraelar létu þeim eftir Gaza.
Tölurnar tala sýnu máli, eftir að byrjað var á þessum múr þá hefur árásum á Ísrael stórfækkað (nú er ég ekki að blanda Líbanonstríðinu í þetta eins og of margir gera sem ekki hafa góða þekkingu á málum þarna) Palestínumenn hafa iðuleg slegið á sáttahönd frá Ísraelum og er það skrýtið þó Ísraelar séu búnir að fá nóg ?
Það er ekkert einstakt í söguuni að fólk sé rekið af löndum sýnum í stríði og gleymið nú ekki í öllum Pallaáróðrinum að Gyðingar voru reknir af svæðum sem þeir höfðu verið á frá alda öðli, bæði frá Palestínu og frá löndum Araba í kring, í stríðinu 1948. Áróðursmenn Araba hér og víðar minnast aldrei á þetta og fólk heldur að allir gyðingar í Palestínu hafi komið frá Evrópu, þetta er fjarri lagi, en heilaþvotturinn er að verða fullkominn.
Sem dæmi um þetta er nokkuð sorglegt sem ég heyrði rithöfundinn Braga Ólafsson segja í viðtali um daginn þegar hann sagðist vilja lifa það að allir gyðingarnir í Ísrael yrðu fluttir til miðvesturríkja Bandaríkjanna ! Rosalega missti ég allt álit á þessum manni, að vera svona illa upplýst fórnarlamb áróðurs.
Rökleysið í þessu er svo hrópandi. Ef við,eins og hann gefum okkur það að gyðingar séu á stolnu landi (sem er rugl) vill hann senda þá til lands sem enginn í raun dregur í efa að hafi verið stolið af Frumbyggjum Ameríku ! Maður á von á aðeins meiri hugsun frá rithöfundi, að vísu gafst ég upp á hans einu bók sem ég hef litið í og geri það ekki aftur.
Þjóðverjar voru reknir af landi í lok Seinna stríðs og samkvæmt rökum (eða afsökunum) félags Ísland-Palestína þá væru sjálfsmorðsárásir afkomenda fólks frá Prusslandi í Póllandi réttlætanlegar af því þeir væru svo reiðir yfir þessu óréttlæti. En auðvitað yrðu þessir menn taldir algerlega brjálaðir og hefðu engann hljómgrunn og stimplaðir Ný-nasistar. Af hverju er svona stór hópur alltaf að afsaka sjálfsmorðsárásir Palestínumanna ? Jú, vel þróaður áróður sem flestir fjölmiðlar vesturlanda, sérlega í Skandinavíu, er að skila sér þannig að það liggur við að það sé orðinn “töluverður skylninur” fyrir því að eyða Ísrael !
Segið mér, skammist þið ykkar fyrir að atkvæði Íslands réð úrslitum fyrir því að Ísrael var stofnað ? Ég trúi þvi að það séu sérstök en illskýranleg bönd á milli þessara landa.