Ég held að eins og flestir aðrir sem að ráða einhverju hérna á landi, þá virðist þetta “nýbúamál” vera eitthvað sem fólk vill ekki ræða. Ef að það kemur grein um íslendinga sem að ráðast á útlendinga, eða nýbúa, þá er þetta blásið upp og kynþáttahatur er alráðandi í landinu. Ef að útlendingar, eða nýbúar, ráðast á íslendinga þá fær það, eins og einhver minntist á í korki hérna, að vera einhverstaðar neðst í mogganum þar sem enginn tekur eftir því. Við eigum víst að búa við málfrelsi í þessu landi okkar, en eins og oft hefur komið í ljós, meðal annars hér á huga, þar sem að greinum er eytt ef að einhver þjóðflokkur, eða kynþáttur gæti móðgast. Ég er ekki að réttlæta hér með rasisma, en það ætti nú að vera allt í lagi að geta rætt málin, án þess að stóri bróðir komi og stöðvi það.
Friður<br><br>Vectro
“Women might be able to fake orgasms. But men can fake whole relationships.”