Málið með Al-Jazeera er að þeir ritskoða engan, sem er ástæðan fyrir því að þeir sýna myndbönd frá Osama bin Laden blygðunarlaust (takið þessari fullyrðingu ekki of alvarlega ;). Þeir eru ekki að gera upp á milli fyrir fólkið sem er að horfa eins og maður sér því miður svo oft. Því tek ég undir með öðrum sem segja að þetta sé frjálsasti fjölmiðilinn í Mið-Austurlöndum (án þess þó að hafa gert nokkuð ýtarlega rannsókn á því og er því að sjálfsögðu að tala með afturendanum hérna, á móti kemur að ég hef ekki hugmynd yfir hverju fólk er að væla þegar að það segir að Al-Jazeera séu einhver handbendi öfgafullra múslima).
En já, það var frábært að sjá þennan fasista kafna í eigin ælu. Ef hann segir að það sé ekki hægt að tala við heiðingja er hann búin að afsala sér réttinum til að mótmæla öllum aðgerðum Ísraela eða annarra gegn íslamistum. Enda engin að fara taka mark á honum ef hann hundsar fólk þegar honum sýnist.