“Árásir Ísraelsmanna hafa nú staðið í ellefu daga og hafa a.m.k. 340 Líbanir látist í árásunum, langflestir óbreyttir borgarar. 34 Ísraelsmenn hafa látist í árásum Hizbollah á Ísrael.”(Tekið af mbl.is)
Segir þetta okkur ekkert um framferði Ísraelsmanna gagnvart saklausum mannslífum?
Ég verð bæði sár og reiður í hvert skipti sem ég sé hversu mikil grimmd býr í manneskjunni, og mér þykir ótrúlegt að nokkur sá er kallar sig boðbera friðar og réttlætis, líkt og Bandaríkjamenn og nokkrir einstaklingar hér, skuli hreinlega styðja þessa aðför að mannslífum, sem og frelsi allra íbúa Líbanons.
Ég fordæmi hér méð ríkisstjórn Ísraels og hvern þann sem styður aðgerðir þeirra í árásum sínum gagnvart mannkyninu.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.