Þegar ég keyrði framhjá Kringlunni í morgun var auglýst á stórum auglýsingaskjá:

11 ára drengur lét lífið í bílslysi.

www.mbl.is

Ég er nú ekki að segja að maður ætti ekki að lesa fréttir af slysum, eða skrifa þær. En mér finnst þetta svolítið ljótt af mogganum að reyna að hagnast ógæfu annarra. Maður myndi búast við DV að auglýsa blaðið sitt eða netsíðu með þessu móti, en ekki Morgunblaðið.